Hildur Dís
Myndir
19.10.2007 13:41:47 / hildurdis

18.10.2007

Var dagurinn sem afi minn fekk ad sofna svefninum langa. Eg veit hann er kominn a betri stad tar sem veikindi og verkir eru ekki til

Eg er takklat fyrir tann tima sem ef fekk med honum, og glod yfir ad hafa kvatt hann adur en eg for til danmerkur.

Eg kem heim i næstu viku til ad vera vid kistulagninguna og jardaforina, en tarf svo tvi midur ad fara aftur ut til danmerkur og klara timann minn her.

Knus til allra heima.


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 16:16:11 / hildurdis

Danaland:)

Ta er skvisan mætt til Danalands, ekki i fyrsta sinn og ekki i seinasta;)

Fyrsta vikan i praktik er buin og er strax buin ad vera a 2 geddeildum, hehe ekki sem sjuklingur heldur sem hjukkulingur, byrjadi ad vera a bradamotokunni sem var mjog gaman og for svo a ungdoms deild fyrir folk 18-23 ara sem var bara gaman, stelpur med alskonar atrosknarsjukdoma, skitsofreiniu sjuklingar, og folk sem var heinlega bara gaga, tannig ad eg rett slapp vid ad vera logd tar inn, en allaveganna eftir tessa viku er eg nokkud viss um ad eg se heil a gedi og allir sem eg tekki.... en uff hvad eg sakna tess ad vera i spitala fotum, komin med nog af tvi ad vera i gallabuxum i vinnunni, tad er sko bannad ad vera i ithrottabuxum, gud ma vita af hverju...

Annars by eg a vestergade sem er gongugatan her i odinsve tannig ad tad er stutt i allar budir hvort sem tad nu er H&M,matarbud, veitingarstadur, eda bar.

Er buin ad hitta eina islenska stelpu sem byr her uti og er a læra hjukrun, og svo hitti eg fyrir tilviljun eina stelpu i gær sem eg var ad vinna med her i DK fyrir orugglega 5-6 arum sidan, frakar finndid, ætla ad hitta hana aftur og spjalla um gamla tima:)

Mer var afhent hjol fyrsta daginn og eg er latin hjola allt sem eg vill fara, tekur 7 minotur ad hjola upp a spitala, 10 min ad hjola i ræktina, hehe buin ad profa spinnig før øved tar sem varla lak af mer sviti, tarf næst ad profa spinnig for elit, og tad besta vid er ad eg tarf ad kaupa mer spinnig sko til ad geta farid i tannig tima... pufffff. og svo profadi eg body pump og body step på danks, så en to tre stå op på benkan...hihi var frekar skondid en kennarinn super duper hress.

Ælta ad fara gera eitthvad ad viti herna nuna.

Endilega kommeta svo elskurnar minar ef eg a ad nenna ad blogga


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 13:02:46 / hildurdis

Lélegast bloggari sem sögur fara af:)

Jæja ég held að málið sé að blogga bara svona 2-4 sinnum á ári, held ég leggi ekki í meira.

Er búin að vera á skaganum seinstu vikur í verknámi og er að fíla mig í tætlur þarna, hrikalega gaman og nóg að gera, þannig að ef ykkur vantar einhver til að hjúkra ykkur endilega hafið samband við ofurhjúkkuna:) hehe

í sumar er ég og svana systir búnar að bóka okkur far til New York verðum 8 heila daga að skoða okkur um og versla af okkur rassgatið, ég hef sett sjálfan mig í kaupbann þangað til, en ég má kaupa eitthvað sem mig algjörlega vantar, en bannað að fara í búðir bara til að versla....  Verðum á geggjuðu hóteli á Broadway http://www.radisson.com/newyorkny_broadway  þannig að það verður stutt í allar búðir og stutt að hendast upp á hótel með pokana þegar við hættum að geta lyft þeim.

En eins og þið flest vitið þá er ég fyrirverandi fimleikastjarna og hef ákveðið að byrja að æfa aftur, hrikalega spennó, æfingar 2 sinnum í viku, fyrsti tíminn í kvöld, kemur í ljós hvort ég komi heil heim eftir kvöldið.

En þið megið þá búast við næsta bloggi þegar ég kem heim frá NY.

Þangað til næst

knús og koss ofurhjúkkan


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 21:27:22 / hildurdis

Nýtt ár, nýtt blogg:)

Held það sé alveg kominn tími til þess að blogga, búin að vera löng og góð pása:)

Samt er ég engu nær hvað ég eigi nú að skrifa um. 

Árið hófst með því að ég byrjaði sem fjarnemi frá HA í hjúkrun og sæki tímana til keflavíkur, kynnist þar frábærum bekk og sé ég ekki eftir því að hafa yfirgefið Akureyrina mína.  Árið hófst einnig á því að byrja að vinna á gjörgæslunni í fossvogi sem hefur og er verið frábær vinnustaður.  Semsagt árið byrjaði vel.

Ég man nú ekkert hvort það hafi eitthvað svakalegt gerst svo næstu mánuði, náði allaveganna öllum prófunum, og byrjaði að vinna á slysa og bráðamótökunni í Fossvogi í maí og er enn með annan fótinn þar.  Óvænt í sumar var mér boðið til Búlgaríu sem var mjög fínt, gott að fá smá frí og sóla sig, og þufra ekki að borga fyrir það.  Sumarið tók svo enda og ég byrjaði á 2 ári í hjúkrun, dugleg stelpan sko.... Kíkti til köben í byrjum september og heimsótti Tinnu vinkonu.

Seinstu mánuðir hafa einkennst af skóla og vinnu, og eiginlega of mikilli vinnu sem hefur leitt til þess að ég hef fengið feitann launaseðil. ekki slæmt mál.

Seinasta ár var á engann hátt slæmt ár, en ég vona að það ár sem var að hefjast bjóði upp á nýja og spennandi hluti.

Vinir mínir hafa blómstrað á árinu, aðrir hafa horfið, sumir hafa birst aftur eftir fjarveru, sumum hefur verið eytt af msn, og einnig hef ég kynnst fullt af nýju fólki.

Ég ætla ekki að setja mér nein áramótaheit þetta árið, ég nenni ekki að átta mig svo á því 31. desember 2007 að ég stóð ekki við neitt af þeim:)

En á komandi ári eru nokkrir hlutir sem mig langar að gera og á ég eflaust eftir að framkvæma þá.

  • Fara til London á ákveðna sýningu
  • Fara til NY með ömmu og þeim sem eiga pening til að koma með:)
  • Fara til Danmerkur og taka verknámið í október nóvember: Búin að sækja um
  • Reyna að fara til sólaralanda í sumar í stuttaferð og gera ekkert nema liggja í sólbaði.
  • Fara í 2 brúðkaup; eins gott að ég fái að vera brúðarmær í öðru: þú veist hver þú ert hehe...
  • Síðan þetta klassíska, standa mig vel í skólanum og bannað að frumlesa fyrir próf, vera dugleg í ræktinni, og þar frameftir götum.

Takk fyrir árið sem er að líða, það verður gaman að hefja nýtt ár með öllu því yndislega fólki sem ég þekki.


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 22:02:36 / hildurdis

Sumarið á enda:(

Afhverju líður tíminn svona hratt?? og samt gerist eitthvað lítið.

Styttist í að skólinn byrjar og maður fer aftur í rútínu lífið, og hætti þessari brjáluðu vaktavinnu, en mér finnst ég búa í vinnunni stundum.  Ég á aðeins 5 vaktir eftir og þá er minni 100% vinnu lokið og fer í 20% á gjörgæslunni og svo verð ég alltaf með annann fótinn á slysó, plús það að vera að kenna eitthvað pump.

Pæling að fara kannksi á kárahnjúka í vikunni og skoða svæðið áður en því verður sökkt.  Svo er ég búin að panta mér far til Köben að heimsækja Tinnu vinkonu og versla ný dress áður en skólinn hefst.

Fór og kíkti í bæinn í dag og fylgdist með Gay pride göngunni, alltaf jafn gaman að fylgjast með.

Annars er ekkert nýtt að frétta frekar en áður, same old.

Er eitthvað að fikta við minnsikus og myspace þannig að ef þið eruð þar endilega addið mér. hildurdis.minnsirkus.is og myspace.com/hildurdis


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 14:34:34 / hildurdis

Skvísan er á lífi.

Ætli það sé ekki bara kominn tími til að setja bloggið í smá sumarfrí, er ekki alveg að hafa tíma í þetta :(

Búið að vera brjálað að gera í vinnunni, hvað er málið með að þegar það er gott veður úti er biðröð út að dyrum upp á slysó.. þarf eitthvað að fara að kenna íslendingum að liggja í sólbaði þegar það er gott veður, ekki að slasa sig.

En annars er ég búin að fá nýtt hjól og farin að hjóla í vinnuna ekki nema 8.45 km þannig að þetta er fín brennsla.

Búlgaría var svona lala, ekkert meira en það, gott veður en ég er ekki að fara þangað aftur.  Núna er planið bara sett á að fara í helgarferð til köben jafnvel í ágúst áður en skólinn byrjar og versla smá, eða kannski mikið:)

Verð að leysa eitthvað af upp í Sporthúsi í júlí þannig þið sem viljið koma og sprikla látið sjá ykkur.

Hittumst skvísurnar upp á Hvaleyrarvatni á sunnudaginn og fórum í piknik í góða veðrinu, og svo er planið í kvöld að hittast hjá Kristínu og slúðra smá áður en Kolla fer út.

Sjáumst hressar í kvöld, og þið hin bara gott sumar:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 20:12:59 / hildurdis

Happagrís

Skvísan er á leiðinni til Búlgaríu á þriðjudaginn, og í þokkabót þá er mér boðið 10 dagar í útlöndum, ekki slæmt.  Hlakka ekkert smá til að fá smá sumarfrí og komst til útlanda í leiðinni, búin að vinna endalaust mikið þannig að það var ekkert mál að fá frí:)

Annars er ekkert nýtt að frétta................


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 00:11:27 / hildurdis

........................


Af mér er mest lítið að frétta,  eyði mestum tíma í vinnunni eða heima sofandi...

Átti frábærann afmælsidag á fimmtudaginn, fór með skvísunum mínum út að borða á Ítalíu ekkert smá gott:) Takk fyrir kvöldið elskunar mínar.


Frá áramótum hafa orðið nokkur alvarleg bílslys þar sem ungt fólk í blóma lífsins hefur slasast alvarlega og nokkrir látið lífið.

Ég vill minna alla sem ég þekki á að nota bílbeltin, það hefur sýnt sig að þeir sem komst heilir úr slysum seinstu mánaða hafa allir verið í belti, en þeir sem hafa sleppt því hafa annað hvort endað upp á gjörgæslu eða í kapellunni, eða örfáir hafa verið heppnir og gengið heilir út.

Ég veit ekki hvað ég myndi gera ef ég þyrfti að sjá vini mína og kunningja mikið slasaða eftir bílslys og hafa ekki verið í belti komandi á slysó til mín í sumar.

Slysin gera ekki boð á undan sér. SPENNIÐ BELTIN ÞAU GETA BJARGAÐ LÍFI YKKAR

Koss og knús elskunar mínar


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 13:52:48 / hildurdis

Heppinn...

Ótrúlegt en satt þá vann ég 5000. kr í happadrætti HÍ ég sem aldrei vinn neitt:)  Annars er ekkert að frétta, var á nætuvakt í nótt og er að fara á auka stubb á eftir, en verð í fríi um helgina, og það er planað júrovision partý hjá kallinum hennar Hlínar.

Hlakka til um helgina skvísur. koss


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 17:15:24 / hildurdis

Búin í prófum og ekkert sumarfrí

Loksins tók þessi próflestur enda og ég kláraði seinasta prófið á föstudaginn:) jíbbí fyrir því. 

En jibbíið stóð ekki lengi og ég byrjaði strax að vinna á laugardagsmorgunninn kl hálf 8 og var líka sunnudag, svo í fyrramálið byrja ég svo á slysó og ekki er nú mikið um frí þar á bæ.

Framundan er semsagt bara vinna, júrovision partý, sólbað, ræktin, borða og sofa:)

Spennandi sumar hjá minni:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 15:14:48 / hildurdis

ég er lifandi

Það er eitthvað búið að vera að kvarta í mér að ég bloggi ekkert... En ég er semsagt á lífi.

Núna er það bara próflesturinn sem fær allann minn tíma þar sem maður verður nú að standa sig þokkalega í þessum prófum og þegar þeim er lokið er ég orðin 25% hjúkkaJ hljómar alveg ágætlega.

 

 



Annars erum við skvísurnar í saumó að fara allar í bíó í kvöld fyrir utan eina sem kemst ekki, ég var svo sniðugt að vinna bíómiða á létt 96.7 fyrir 8 manns þannig að ég ákvað að bjóða saumó skvísunum mínum.  Svo á hún Kolla mín afmæli og ætar að halda upp á það á laugardaginn, og ég mæti á svæðið, fá smá pásu frá bóknum.

 

 



Annars er bara mest lítið að frétta, byrja að vinna á slysó 15 maí og verð í 100% vaktarvinnu í allt sumar, og hef hugsað mér þess á milli sem ég verð ekki að vinna að skella mér í sundlaugarnar og reyna að stelast í smá litJ

 

 



Læt heyra í mér eftir prófin, eða ef mér fer virkilega að leiðast í lestrinumJ

 

 



Skvísan kveður


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 21:16:12 / hildurdis

Hvíl í friði

Mikil sorg hefur verið í Hafnarfirði seinstu daga.

Ég held að allir þekki einhvern sem þekkti strákan, þannig að þetta snertir alla á einhvern hátt.

Ég votta öllum sem þekktu þá mína dýpstu samúð á þessum erfiðu stundum


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 13:52:10 / hildurdis

Glæpur framinn...

Jæja fullt búið að gerast seinustu daga, búin að vera veik en haft engann tíma fyrir það, er að vona að ég fari að vera betri þegar líkminn áttar sig á því að ég hef ekki tíma í svona veikinda rugl.

Var vitni af glæpamönnum að störfum á laugardaginn, en í stuttu máli, 3 bílar, nokkrar manneskjur, barefli, hnífur, skorið á 4 dekk, keyrt í burtu og bílinn meðónýtu dekkinn skilinn eftir. gaurinn leggur bílinum og svo um morgunninn var hann í annarlegu ástandi bílinn þá.., brotnar rúður, rispað lakk, og búið að skemma allt sem hægt er að skemma.  Ætla ekki að fá einhverja handrukkara á mig með því að segja eitthvað dítail hvað skeði.

Planið er svo að fara skvísuferð í bíó á fimmtudaginn að sjá RENT:)

Sjáumst hress


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 22:43:48 / hildurdis

Flensan mætt á svæðið

ohh hvað ég er ekki að nenna að vera veik frekar en fyrri daginn, pabbi er búin að liggja heima veikur síðan á sunndag og svo er hann orðinn fínn núna og þá tek ég við.. var búin að lofa að kenna auka 3 body pump tíma, þannig að ég mæti bara með hor í nös og kenni á morgunn, laugardag og sunnudag, og reyndar líka mánudag og þriðjudag, þannig að á miðvikudag get ég verið veik.

Nóg að gera framundan, fer í 2 viknaverknám 27 mars svaka spennó, fullt af afmælum framundan, skólinn alveg að klárast og þá skellur verkuleikinn á og prófin mæta á svæðið.  Á eftir að gera ritgerð sem ég á að skila í byrjun apríl, og það sem er verra þá er ég ekki alveg búin að ákveða hvað ég á að skrifa um.....

Ég hef tekið þá ákvörðun að fara ekki aftur norður, þannig að skvísan verður bara áfram sem fjarnemi í keflavíkinni:)

Hóst hóst hor hor

Skvísan kveður í bili


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 13:48:35 / hildurdis

Akó baby akó

Búin að vera á Akureyri síðan á föstudaginn, skellt mér á work shop á laugardaginn verið að kynna nýju prógrömminn mjög flott:) svo um kvöldið var árshátið hjá skólanum, alltaf gaman að kíkja í sjallan.

Síðan er bara búin að vera stíf dagskrá í skólanum síðan í gær og verður fram á laugardag. Búin með 2 próf af 4 og mér gekk bara mjög vel  ein 10 og svo 9:( ég sem ætlaði að fá 10 í öllum.. það kemur bara næst

Annars er bara lítið að frétta, saumó hjá hlín minni á laugardaginn þegar ég kem heim:)

Ég er mikið farin að pæla að hætta með þetta blogg, mér finnst ekki sniðugt að hver sem er geti skoðað þetta og maður veit ekki hvaða fólk þetta er, allaveganna virðist enginn skrifa í gestabók.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9